Hver er frambjóðandinn? – 10. sæti


Hver er frambjóðandinn?? Það er enginn annar en Hákon sem er frambjóðandi dagsins! Hann sprengir náttúrulega alla mögulega krúttskala með þessari mynd!! 🙂

Nafn: Hákon Jónsson

Aldur: 20 ára

Fjölskylduhagir: Barnlaus og hvorki giftur, né í sambúð

Starf: Framhaldsskólanemi

Áhugamál: Fylgist mikið með NFL og spila Fortnite

Sæti á lista: 10. sæti

Hvað er gott við Eyjar: Stutt í allt

Hvað má bæta í bæjarfélaginu: Mér finnst vanta meiri afþreyingu fyrir krakka á framhaldsskólaaldri.

Hvers vegna viltu nýta krafta þína í bæjarmálin: Því ég held að ég geti látið gott af mér leiða

Af hverju X við H: Af því ég heiti Hákon

Verða ÍBV Íslandsmeistarar í handbolta: Já ég ætla nú rétt að vona það

Í hvaða sæti endar ÍBV í fótboltanum KK/KVK: Er ekki bara klassískt að KK haldi sér uppi og verði í 9.-10. sæti. KVK taka 4. sætið

Eitthvað að lokum: Addiði snappinu okkar “Fyrirheimaey”, því að síðustu vikuna fyrir kosningar verður hver bomban á fætur annarri þarna inni.