Hagsmunagæsla


Hlutverk okkar sem bjóða sig fram til sveitastjórna er margþætt og snertir marga fleti. Eitt af þeim hlutverkum er hagsmunagæsla fyrir samfélagið okkar hér í Vestmannaeyjum. Sú hagsmunagæsla felst meðal annars í samstarfi við stjórnvöld, ríkisstofnanir og önnur sveitafélög.

Það er því mjög mikilvægt að kjörnir fulltrúar séu á vaktinni fyrir alla íbúa, stóra sem smáa, fyrirtæki og félagasamtök gagnvart því að liðka fyrir þessum aðilum í samskiptum við framangreinda aðila.

Það skiptir líka máli að komið sé fram af auðmýkt og án yfirlætis og hroka gagnvart þeim aðilum sem geta bæði styrkt okkur og aðstoðað í leik og starfi. Að þeir beri virðingu og leggji sig fram um að leita álits samfélagsins á því hvað sé brýnast fyrir íbúana hér.

Fyrir Heimaey leggur mikla áherslu á að byggja upp gott samstarf og áþreifanlegt aðhald gagnvart öllum þessum aðilum. Vöndum vinnubrögðin, það erum jú við sem hér búum sem gerum samfélagið okkar að þeim stað sem við viljum búa á.

Guðný Halldórsdóttir

Höfundur skipar 11.sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.