Fyrir Heimaey tók þátt í norrænu strandhreinsuninni

Norræna strandhreinsunin var í dag 5. maí. Frambjóðendur og bakhjarlar Fyrir Heimaey létu ekki sitt eftir liggja og tóku þátt í þessu frábæra og þarfa átaki.

Nóg var af rusli í Viðlagafjöru og skiptist á skin og skúrir en það stoppaði fólkið ekki. Frábært framtak hjá Hildi Jóhannsdóttur að skrá Vestmannaeyjar til leiks og gaman að fá að taka þátt.

Nánari upplýsingar um hreinsunina: http://landvernd.is/sidur/norraen-strandhreinsun-thann-5-mai-2018