Við getum gert betur!

Í Vestmannaeyjum er starfrækt félagsmiðstöðin Rauðagerði þar sem þjónusta hefur verið skorin niður jafnt og þétt síðustu ár. Fyrir tveimur árum kom frétt í bæjarblöðunum þar sem kynntar voru breytingar á starfsemi Rauðagerðis.

Þar átti lengd viðvera fatlaðra barna og ungmenna að fara fram í Heimaey, vinnu og hæfingarstöð. Þar kom fram að Rauðagerði yrði opið fimm kvöld í viku og tvo seinni parta eða 16,5 klst og var það gert að óskum ungmennaráðs Rauðagerðis.

Í dag, ekki einu sinni tveimur árum seinna, er opið tvö kvöld í viku. Jafnframt er opið einn seinnipart og einn föstudag í mánuði sem gerir að meðaltali 7,5 klst. á viku sem félagsmiðstöðin okkar er opin skv. facebooksíðu Rauðagerðis.

Félagsmiðstöðin Rauðagerði er fyrir börn og unglinga á aldrinum 11-16 ára þar sem stuðlað er að jákvæðum þroska ungs fólks. Ásamt sjálfstæði, bæði í verki og félagslegum samskiptum. Gera þau hæfari til að takast á við lífið þar sem áhersla er lögð á viðurkennt tómstundastarf, forvarnir, fræðslu, örvun félagsþroska og jákvæð samskipti.

Í nútíma þjóðfélagi virðast símar og tölvur vera að taka yfirhöndina og við sem samfélag þurfum að bregðast við því á einn eða annan hátt. Bætum þjónustuna á Rauðagerði og höfum hana faglega þar sem börn og ungmenni geta komið saman og átt eðlileg samskipti ásamt því að efla þroska sinn.

Fötluð börn og ungmenni eiga líka að geta tekið þátt sem virkir þátttakendur í samfélaginu með jafnöldrum sínum og þarf að færa þau nær þeim svo þau fái tækifæri til að efla þroska sinn á sem jákvæðastan hátt.

Breytum hugsunarhætti ungmenna í Vestmannaeyjum og gerum vinnuskólann á sumrin þannig að það sé gaman að vera í vinnuskólanum með fjölbreyttri vinnu, skapandi starfi og fræðslu. Það væri til dæmis hægt að tengja faglegt starf á Rauðagerði við vinnuskólann á sumrin.

Bregðumst við og hjálpumst að við að gera þennan hóp betur undirbúin fyrir framtíðina.

Hrefna Jónsdóttir

Höfundur skipar 5.sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.