Hver er frambjóðandinn? – 9. sæti

Hver er frambjóðandinn?? Þetta er hún Aníta okkar! Aníta er tvíburi og átti því enga mynd af sér sem barni einni, okkur fannst það bara krúttlegt hahaha.. 

Nafn: Aníta Jóhannsdóttir

Aldur: 26 ára

Fjölskylduhagir: Í sambúð með Garðari Erni Sigmarssyni og saman eigum við synina, Hilmar Gauta 3 ára og Elvar Aron 11 mánaða

Starf: Skrifstofustjóri hjá Idunn seafoods ehf.

Áhugamál: Fjölskylda, vinir og ferðalög

Sæti á lista: 9. Sæti

Hvað er gott við Eyjar: Nálægðin við fjölskylduna og vini.

Hvað má bæta í bæjarfélaginu: Það má eyða óvissu með inntöku barna á leikskóla og auka samvinnu með dagforeldrum. Þarf öflugri upplýsingagjöf og auka við fjölskyldusvæði.

Hvers vegna viltu nýta krafta þína í bæjarmálin: Ég og mín fjölskylda viljum hvergi annarsstaðar vera og því finnst mér ég verða að setja mark mitt á samfélagið okkar.

Af hverju X við H: Gagnsæ stjórnsýsla, meira íbúalýðræði og meiri samvinnu. Fullnýta íbúagáttina og hafa auðveldari umsóknarferli.

Í hvaða sæti endar ÍBV í fótboltanum KK/KVK: KK 10 sæti og KVK 3 sæti.

Eitthvað að lokum: Það þarf kjark til að breyta!