Áhætta

Skynjun fólks á áhættu er mismunandi. Einn skynjar áhættu mikla í ákveðnum aðstæðum, en annar litla í sömu aðstæðum. Áhætta tengd fjárfestingum er margskonar og er enginn einhlítur eða altækur mælikvarði til á áhættu.

Markaðs-, vaxta-, gjaldmiðla-, verðbólgu- og pólitísk áhætta eru dæmi um áhættur sem fylgja fjárfestingum. Sumir eru tilbúnir að taka mikla áhættu, aðrir ekki.

Ég hef síðastliðin 12 ár starfað í fjármálaheiminum. Byrjaði á gólfinu hjá Deloitte við endurskoðun árið 2006, hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2011 og hef starfað við fjárfestingar frá árinu 2014. Ég hef rætt við stjórnendur og komið að rekstri fyrirtækja sem ganga misvel. Ég hef því mikla reynslu í því að greina áhættu tengda fjármálum. Mörg þessara fyrirtækja sem ekki ganga vel eiga það sameiginlegt að áætlanir fóru ekki eins og lagt var upp með. Það gerðist eitthvað óvænt.

Fyrir bæjarfélag að leggja hlutafélagi sem rekur farþegaferju til 150 milljón króna stofnfé, þar sem helsta áhættan er Landeyjahöfn er í mínum huga ekki lítil áhætta.

Guðmundur Ásgeirsson

Höfundur skipar 4.sæti á lista Fyrir Heimaey í komandi sveitarstjórnarkosningum.