Íris og Jóna Sigga í efstu sætum

Fyrir Heimaey – frambjóðendur

Framboðslisti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði var samþykktur einróma á fundi félagsins nú í dag. Listann leiðir Íris Róbertsdóttir og annað sætið skipar Jóna Sigríður Guðmundsdóttir.

Framboðslisti Fyrir Heimaey 2018

1. Íris Róbertsdóttir, fjármálastjóri / grunnskólakennari

2. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri / viðskiptafræðingur

3. Elís Jónsson, tæknifræðingur / vélstjóri

4. Guðmundur Ásgeirsson, endurskoðandi / fjárfestir

5. Hrefna Jónsdóttir, starfsmannastjóri / þroskaþjálfi

6. Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri

7. Kristín Hartmannsdóttir, gæðastjóri / tækniteiknari

8. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður

9. Aníta Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri / viðskiptafræðingur

10. Hákon Jónsson, nemi

11. Guðný Halldórsdóttir, sjúkraliði

12. Styrmir Sigurðarson, bráðatæknir / yfirmaður sjúkraflutninga á Suðurlandi

13. Emma Sigurgeirsdóttir Vídó, leikskólakennari

14. Leifur Gunnarsson, eldri borgari